Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Hagar Capital/Financing Update 2026

Jul 10, 2026

2196_rns_2026-07-10_f8560e58-bb6f-4024-acbe-ebd71a32b044.html

Capital/Financing Update

Open in viewer

Opens in your device viewer

Hagar hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Hagar hf.: Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Hagar hf. luku í dag, 10. júlí 2026, sölu á nýjum skuldabréfaflokki HAGA 130629 1.

HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00% vaxtaálagi, með lokagjalddaga þann 13. júní 2029.

Seld voru skuldabréf að nafnvirði 1.320 m.kr. á genginu 100,0.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna föstudaginn 17. júlí nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Skuldabréfin voru seld í lokuðu söluferli og útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta á markaði.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, [email protected]

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingabanki hf., [email protected]

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, [email protected]